Landsaðgangur að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum þýðir að þeir notendur sem eru á Íslandi og tengjast gegnum íslenska netveitu eiga að hafa aðgang að þeim gagna- og greinasöfnum sem eru skráð í gráa rammann hér til vinstri. Sjá nánar:
- Kynning á landsaðgangi (PowerPoint-skjal með hljóði, um 9MB)
- Leiðbeiningar um leitir að tímaritum
- Leiðbeiningar um leitir að tímaritum eftir titli þeirra (í stafrófsröð eða með orðum úr titli)
- Leiðbeiningar um leitir að tímaritum eftir efni þeirra (flokkuð leit)
- Leiðbeiningar um leitir inni í gagnasöfnum eða tímaritasöfnum í landsáskrift
- Leiðbeiningar um notkun EndNote Web heimildaskráningarforritsins
- Leiðbeiningar um vanda með aðgang
- Leiðbeiningar um afritun greina úr landsaðgangi
- Leiðbeiningar til höfunda greina sem birtast í landsaðgangi
Embargo eða birtingartöf er á nokkrum tímaritum í Ebsco Host og ProQuest. Það þýðir að greinar frá nýjasta 1, 3 eða 12 mánuðum hverju sinni sjást aðeins sem upplýsingar um greinina og útdráttur úr henni (A&I, article information and index). Að loknu þessu tímabili birtast greinarnar í fullum texta. Þurfir þú að fá grein sem birtist á þennan hátt, eða grein sem ekki er í landsaðgangi, þarft þú að snúa þér til bókasafns og nota greinaþjónustu þar.
Leiðbeiningar um vanda með aðgang
Ef þú hefur tengst á Íslandi frá íslenskri netveitu og átt í vanda með aðgang, vinsamlega:
- sendu skilaboð í tölvupósti á hvar@hvar.is
- afritaðu skilaboðin sem koma á síðunni þar sem þú lendir í vandræðum. Það er gott ef þú tekur skjámynd (Alt+PrintScreen) og límir í tölvupóstinn
- settu þessi skilaboð með IP-tölu sem þú tengist frá (smelltu hér til að ná í IP-töluna þína)
- segðu hvaða grein (heiti greinar, heiti tímarits, tölublað og árgangur) þú varst að reyna að ná í
Notendur þessara netveitna á Íslandi hafa aðgang:
- Hringiðan
- IP-fjarskipti / HIVE
- Lína.net
- OG Vodafone
- Nýherji
- RH-net
- Síminn
- Skyggnir
- Skýrr (þar með talið FS-net)
- Snerpa
- Tölvun ehf.
Athugið að fólk sem fer inn á netið á Íslandi og tengir sig svo við einhverja gagnaþjónustu erlendis, eins og Google Docs eða gagnasafnaveitur í Bandaríkjunum, þekkist þar eftir eins og það komi frá IP-tölum þeirrar þjónustu, sem þýðir að það fær ekki landsaðgang. Lausnin er einföld, það fer beint á hvar.is að ná í gögnin en ekki í gegnum einhverja aðra þjónustu.
